30. janúar 2021 - 13:00 til 14:30
Leikum að list: Fjölskyldudagskrá
Staður viðburðar:
Kjarvalsstaðir
Fjölskyldudagskrá í tengslum við sýninguna Óravídd.
Við leikum okkur að því að búa til fallega garða og leiðréttum myndir í anda sýningar Sigurðar Árna Sigurðssonar myndlistarmanns, Óravídd, sem nú er uppi á Kjarvalsstöðum. Gott er að vera búin að ganga í gegnum sýninguna með börnunum áður en fjölskyldan kemur í vinnustofuna.
Í sóttvarnarskyni verður hver fjölskylda er með sérstaka vinnustöð og efni er ekki deilt á milli fjölskylduhópa.
Aðeins 5 fjölskyldur komast á viðburðinn og þær fjölskyldur ganga fyrir sem eru skráðar.
Dagskráin er miðuð að því að börn komi í fylgd fullorðinna, heimsóknin sé skemmtileg og skapandi samvera milli kynslóða.
Ókeypis fyrir börn yngri en 18 ára.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.