Listin talar tungum: Sjónlýsing fyrir blinda og sjónskerta
Guðbjörg H. Leaman og Þórunn Hjartardóttir verða með sjónlýsingu fyrir blinda og sjónskerta á sýningunni Eins langt og augað eygir á Kjarvalsstöðum laugardaginn 12. mars kl. 14:00.
Ókeypis aðgangur. Skráning HÉR
Eins langt og augað eygir er fjölbreytt og umfangsmikil yfirlitssýning á verkum myndlistarmannsins Birgis Andréssonar (1955-2007) sem tekur yfir nær alla Kjarvalsstaði.
Birgir var var leiðandi afl í íslenskri myndlist í meira en 30 ár en féll frá langt fyrir aldur fram. Birgir leitaði í brunn íslenskrar menningar, sagna, hefða og handverks þjóðarinnar og dró þar fram þætti sem hann síðan setti fram á sinn einstæða hátt í verkum sem tryggðu honum sess í íslenskri listasögu og aðdáun á alþjóðlegum vettvangi myndlistar. Sýningin veitir innsýn í áhrifamikinn feril listamannsins og tengir verk hans við innlenda og erlenda samtímalist.
Listin talar tungum er hluti af samstarfsverkefninu Tökum höndum saman á vegum Borgarsögusafns og Listasafns Reykjavíkur sem hlaut af Öndvegisstyrk Safnasjóðs.