Menningarnótt – Leiðsögn sýningarstjóra: Spor og þræðir
Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, annar sýningarstjóri Spora og þráða, verður með leiðsögn um sýninguna á Kjarvalsstöðum laugardaginn 20. ágúst kl. 18.00.
Spor og þræðir er sýning á verkum íslenskra samtímalistamanna sem sauma út eða nýta nál og þráð sem verkfæri við listsköpun sína. Þau líta ýmist til fortíðar og vinna með arfleifð handverks og hefðar, eða nýta nálina til þess að prófa sig áfram í framsæknum tilraunum í bland við aðra miðla. Á sýningunni eru ný og nýleg verk eftir fjölbreyttan hóp listamanna, bæði fulltrúa yngri kynslóðarinnar sem og reyndari listamenn sem þegar hafa sett mark sitt á íslenska myndlistarsenu. Þau eiga það öll sameiginlegt að hafa tekið ástfóstri við nálina sem verkfæri sem skipar veigamikinn þátt í listsköpun þeirra. Verkin endurspegla mikla breidd í inntaki, þar sem glímt er við djúpstæð samfélagsmein samhliða ljóðrænu hversdagsins og ljúfsárri nostalgíu.