20. ágúst 2022 - 17:00
Menningarnótt – Tónleikar: Huldumaður og víbrasjón
Staður viðburðar:
Kjarvalsstaðir
Dúettinn Huldumaður og víbrasjón leikur þekkt íslensk dægurlög í glænýjum og framandi búningi inni á sýningunni Andlit úr skýjum – mannamyndir Jóhannesar S. Kjarvals.
Dúettinn, sem dregur nafn sitt af málverki eftir Kjarval, skipa þeramínleikarinn Hekla Magnúsdóttir og gítarleikarinn Sindri Freyr Steinsson. Tónleikagestum gefst einstakt tækifæri að upplifa dulmagnaðan hljóðheim umkringdum listaverkum meistara Kjarvals. Hljóðheim þar sem fögur og angurvær gervirödd þeramínsins leikur við dökka og djassskotna gítartóna ásamt þverflautu og hljóðgervil.
Verð viðburðar kr:
0