15. júní 2017 - 20:00

Samtal við Ragnar Kjartansson

Ragnar Kjartansson. Ljósmynd: Hildur Inga Björnsdóttir.
Staður viðburðar: 
Hafnarhús

Markús Þór Andrésson sýningarstjóri ræðir við Ragnar Kjartansson um feril listamannsins og sýninguna Guð, hvað mér líður illa í Hafnarhúsi. Gestum er velkomið að bera fram spurningar. Sýningin er fyrsta safnsýning Ragnars á heimavelli eftir sigurför á erlendri grundu.

Sýningin endurspeglar óð Ragnars til listarinnar í allri sinni dýrð, til tónlistar, leikhúss, kvikmynda, bókmennta og, að sjálfsögðu, myndlistar. Hylling listamannsins birtist í völdum verkum, frá árinu 2004 til dagsins í dag; lifandi gjörningum, stórum myndbandsinnsetningum, ljósmyndum, höggmyndum, málverkum og teikningum.

Viðburðurinn fer fram í porti Hafnarhússins. Aðgöngumiði á safnið gildir.

GAMMA er aðalstuðningsaðili sýningarinnar.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.