11. janúar 2018 - 20:00

Stór Ísland: Leiðsögn listamanna

Myndverk eftir Sari Cedergren (til vinstri) og Claudia Hausfeld (til hægri).
Staður viðburðar: 
Hafnarhús

Listamennirnir Claudia Hausfeld og Sari Cedergren taka þátt í leiðsögn um sýninguna Stór-Ísland.

Stór-Ísland er sýning á verkum listamanna af ýmsu þjóðerni sem hafa búið og starfað á Íslandi um lengri eða skemmri tíma.

Alþjóðlegir listamenn hafa löngum sett svip sinn á íslenskt listalíf og verið öflugir þátttakendur og áhrifavaldar í mótun menningarinnar.

Þátttakendur í sýningunni eru Anna Hallin, Claudia Hausfeld, Jeannette Castioni, Joris Rademaker, Rebecca Erin Moran, Sari Cedergren og Theresa Himmer.

Aðgöngumiði á safnið gildir.

Sýning: 
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.