Sýningalok á Kjarvalsstöðum
Síðasti dagur sýninganna Andlit úr skýjum og Spor og þræðir á Kjarvalsstöðum er sunnudagurinn 18. september.
Í sýningunni Andlit úr skýjum fá gestir að kynnast mannamyndum Kjarvals sem hann vann á gjörvöllum ferli sínum. Hér eru olíumálverk af þekktu fólki frá öllum tímabilum, vatnslitamyndir af ítölsku fólki frá 1920, úrval blek- og túskteikninga frá 1928-30, rauðkrítarmyndir af fjölskyldu og nánum vinum og lítt þekktar andlitsmyndir frá seinni árum hans. Loks má geta um hópmyndir hans sem aldrei hafa verið sýndar saman. Á sýningunni eru einnig allar fáanlegar sjálfsmyndir Kjarvals. Andlitsmyndir Kjarvals hafa skipað veglegan sess á yfirlitssýningum á verkum listamannsins og samsýningum af ýmsu tagi en til þessa hefur sjónum ekki verið beint að þessum myndum sérstaklega.
Spor og þræðir er sýning á verkum íslenskra samtímalistamanna sem sauma út eða nýta nál og þráð sem verkfæri við listsköpun sína. Spor og þræðir er sýning á verkum íslenskra samtímalistamanna sem sauma út eða nýta nál og þráð sem verkfæri við listsköpun sína. Þau líta ýmist til fortíðar og vinna með arfleifð handverks og hefðar, eða nýta nálina til þess að prófa sig áfram í framsæknum tilraunum í bland við aðra miðla. Á sýningunni eru ný og nýleg verk eftir fjölbreyttan hóp listamanna, bæði fulltrúa yngri kynslóðarinnar sem og reyndari listamenn sem þegar hafa sett mark sitt á íslenska myndlistarsenu. Þau eiga það öll sameiginlegt að hafa tekið ástfóstri við nálina sem verkfæri sem skipar veigamikinn þátt í listsköpun þeirra.
Mjög mikil aðsókn hefur verið á báðar sýningarnar í sumar og síðustu forvöð fyrir gesti að njóta þessara einstöku sýninga.