Sýningaropnun – Erró: Skörp skæri
Sýningin Erró: Skörp skæri opnar á 2. hæð Hafnarhúss á laugardaginn 28. janúar kl. 15.00.
Á sýningunni má rekja tryggð Errós við samklippið, sem leið til að skapa önnur listaverk, og sem aðferð til að halda áfram að segja óvæntar sögur. Samklipp hefur verið undirstaða listsköpunar Errós í yfir sextíu ár. Hann hófst snemma handa á því, með Meca-Make-Up myndaröðunum 1959-60, og afraksturinn fram á þennan dag eru yfir 30 000 samklipp. Með því að safna, klippa, líma og síðan mála blandar Erró þannig frjálslega saman sjónrænu efni og tilvísunum sem umbreytist í kraftmikil, sláandi og hlífðarlaus listaverk. Með því ljær hann nýja merkingu þeim aragrúa mynda sem nálgast má í mannkynssögunni, fréttum, alþjóðlegum miðlum og hversdagslífi nútímamannsins.
Frá 1989 hefur Erró gefið Listasafni Reykjavíkur yfir 700 af samklippum sínum, safnið er umfangsmikil þjóðargersemi sem heldur áfram að vaxa. Í kjölfar nýjustu uppfærslu á samklippum í Errósafninu er þessari sýningu ætlað að kynna verkin ásamt öðrum sem spanna gjörvallan litríkan feril listamannsins.