14. janúar 2023 - 16:00

Sýningaropnun: Hildur Hákonardóttir: Rauður þráður

Staður viðburðar: 
Kjarvalsstaðir
Sýningin Rauður Þráður með verkum Hildar Hákonardóttur opnar á Kjarvalsstöðum laugardaginn 14. janúar kl. 16.00. Rauður þráður er fjölbreytt og yfirgripsmikil sýning á verkum myndlistarkonunnar Hildar Hákonardóttur.

Hildur hefur á löngum starfsferli sínum tekið á málefnum samtíma síns og kynjapólitík og nýtt til þess fjölbreytta miðla, þó mest vefnað. Á sýningunni má sjá mörg af þekktustu verkum Hildar sem hafa öðlast mikilvægan sess í íslenskri menningarsögu og haft áhrif til breytinga í þjóðfélaginu. Einnig verða sýndar innsetningar, ljósmyndir, myndbandsverk og tölvugerðar teikningar frá víðfeðmum ferli sem spannar yfir 50 ár.

Sýningarstjóri er Sigrún Inga Hrólfsdóttir en sýningin er afrakstur rannsóknar Sigrúnar á ferli Hildar. Listasafn Reykjavíkur hlaut Öndvegisstyrk Safnaráðs árið 2021 til þess að rannsaka hlut kvenna í íslenskri myndlist í samstarfi við námsbraut í listfræði við Háskóla Íslands. Sýningin er sú fyrsta af þremur sem úr þessum Öndvegisstyrk kemur.