25. mars 2023 - 15:00
Sýningaropnun – Kviksjá: Íslensk myndlist á 20.öld
Staður viðburðar:
Kjarvalsstaðir
Verið velkomin á opnun sýningarinnar Kviksjá: Íslensk myndlist á 20. öld á Kjarvalsstöðum, laugardag 25. mars kl. 15.00 í tilefni af því að 50 ár eru liðin frá vígslu Kjarvalsstaða.
Sýningin veitir innsýn í íslenska myndlist á 20. öld í gegnum þann hluta menningarafsins sem varðveittur er í Listasafni Reykjavíkur. Á sýningunni er að finna um tvöhundruð listaverk úr safneigninni og skiptist hún á milli Austur- og Vestursala á árinu 1973, þegar Kjarvalsstaðir voru vígðir. Um leið markar árið ákveðin straumhvörf í listasögunni hér á landi því þá eru að verða skil á milli línulegrar framvindu módernismans og margsögu framúrstefnutímabilsins.
Verð viðburðar kr:
0