20. maí 2017 - 16:00
Sýningaropnun: List fyrir fólkið
Staður viðburðar:
Ásmundarsafn
Ný yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveinssonar, List fyrir fólkið, opnar laugardaginn 20. maí kl. 16 í Ásmundarsafni.
Hönnun sýningarrýmisins er í höndum Finns Arnars Arnarsonar.
Samhliða opnun sýningarinnar kemur út vegleg bók sem varpar ljósi á feril Ásmundar og stöðu í íslenskri listasögu út frá ólíkum sjónarhornum.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.