23. mars 2019 - 15:00
Sýningaropnun: Núna norrænt /Now Nordic
Samstarfsaðili/-ar:
Staður viðburðar:
Hafnarhús
Sýningaropnun í Hafnarhúsi kl. 15.00 - laugardaginn 23. mars - helgina fyrir HönnunarMars. Norræn hönnunarsýning á nýjum verkum 28 hönnuða og hönnunarteyma frá Íslandi, Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi.
Danska fyrirtækið Adorno, sem vinnur að því að kynna alþjóðlega hönnun á heimsvísu, valdi sýningarstjóra frá löndunum fimm til þess að tefla fram nokkrum af bestu hönnuðum hvers lands. Sýningin hefur þegar verið sett upp í Kaupmannahöfn og London.
Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands opnar sýninguna. Kristian Snorre Anderssen, annar eigandi Adorno ávarpar gesti.
Sýning: