23. febrúar 2018 - 20:00

Sýningaropnun: Tak i lige måde - Samtímalist frá Danmörku

Staður viðburðar: 
Hafnarhús

Fjórir valinkunnir danskir myndlistarmenn eiga verk á sýningunni Tak i lige måde: Samtímalist frá Danmörku sem verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi föstudagskvöldið 23. febrúar kl. 20.00. Listamennirnir eru Jeannette Ehlers, Jesper Just, John Kørner og Tinne Zenner.

Jesper Just verður viðstaddur og mun ræða við Markús Þór Andrésson, sýningarstjóra, í Hafnarhúsinu kl. 21.00 um sýninguna og eigin verk.

Í ár eru 100 ár liðin frá því að Ísland hlaut fullveldi. Listasafn Reykjavíkur minnist þessara tímamóta með því að bjóða fjórum samtímalistamönnum frá Danmörku að sýna í safninu. Mikil gerjun á sér stað í danskri myndlist, ekki síst í ljósi breyttrar heimsmyndar í pólitísku og samfélagslegu tilliti.

Mette Kjuel Nielsen, sendiherra Danmerkur á Íslandi, opnar sýninguna.  

Boðið verður upp á leiðsagnir og kvikmyndasýningar samhliða sýningunni.