Tónleikar Páls á Húsafelli: Heilsa þér Kjarval
UPPSELT Á BÁÐA TÓNLEIKANA!
Páll á Húsafelli frumflytur ný lög með textum eftir Jóhannes Kjarval, Jóhann Sigurjónsson, Páll á Hjálmsstöðum og Þorstein frá Hamri, í útsetningum eftir Ivetu Lichu og fleiri. Páll er einn af sextán samtíma myndlistarmönnum sem eiga verk á sýningunni Eilíf endurkoma. Á þeirri viðamiklu sýningu mynda verk Kjarvals (1885-1972) þráð sem tengir tvenna tíma en verkum hans er teflt fram ásamt verkum myndlistarmanna sem sett hafa svip sinn á íslenskt listalíf síðustu ár.
Vegna takmarkaðs fjölda er skráning nauðsynleg.
Tónleikar kl. 14.00 – skráning HÉR
Tónleikar kl. 15.00 – skráning HÉR
Páll hefur samið tónlist við ljóðtexta Kjarvals og annarra skálda en yfirskrift tónleikanna er sótt í ljóðkveðju Páls á Hjálmsstöðum til Kjarvals. Á tónleikunum koma einnig fram Kammerkór Suðurlands, Frank Aarnink á slagverk, Jóel Pálsson á saxófón og Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði. Stjórnandi er Hilmar Örn Agnarsson.