5. nóvember 2023 - 13:00

Út um fjöll og firnindi

Staður viðburðar: 
Kjarvalsstaðir

Leikum að list!

Teiknum eins og meistarar 20. aldar. Hvernig föngum við það sem er langt í burtu á blað sem er beint fyrir framan okkur?

Sigríður Melrós leiðir fjölskyldur í teiknismiðju þar sem landslagsverk Kjarvals og samtímafólks hans veita innblástur.

 

Leikum að list er yfirskrift fjölskyldudagskrár Listasafns Reykjavíkur. Þar eru börn sérstaklega boðin velkomin í safnið ásamt foreldrum sínum til þess að skoða og upplifa myndlist í gegnum leiki og skemmtilegar umræður.

Dagskráin er miðuð að því að börn komi í fylgd fullorðinna og að heimsóknin sé þannig skemmtileg og skapandi samvera milli kynslóða.

Frítt fyrir börn yngri en 18 ára. Aðgöngumiði á safnið gildir fyrir fullorðna. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.

Við Leikum að list reglulega allt árið um kring og það er um að gera að fylgjast með á dagskrársíðu safnsins. Fjölskyldurýmin eru síðan alltaf opin.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.