8. október 2017 - 14:00

Leiðsögn með listamanni og sýningarstjóra

Ólöf K. Sigurðardóttir og Anna Líndal
Staður viðburðar: 
Kjarvalsstaðir

Leiðsögn um sýninguna Leiðangur með Önnu Líndal og Ólöfu K. Sigurðardóttur, sýningarstjóra og safnstjóra Listasafns Reykjavíkur.

List Önnu Líndal er marglaga og samsett. Þetta á jafnt við um myndefni hennar, viðfangsefni verka og merkingu þeirra sem hina sjónrænu framsetningu þessara þátta. Í innsetningum hennar má finna jafnt nýjustu tækni í formi myndbanda á tölvuskjáum sem og aldagamla hefð íslenskra hannyrða og undanfarin ár hafa þættir vísindalegra rannsókna og skrásetningar orðið æ fyrirferðarmeiri. 

Aðgöngumiði á safnið gildir.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.