8. október 2017 - 14:00
Leiðsögn með listamanni og sýningarstjóra
Staður viðburðar:
Kjarvalsstaðir
Leiðsögn um sýninguna Leiðangur með Önnu Líndal og Ólöfu K. Sigurðardóttur, sýningarstjóra og safnstjóra Listasafns Reykjavíkur.
List Önnu Líndal er marglaga og samsett. Þetta á jafnt við um myndefni hennar, viðfangsefni verka og merkingu þeirra sem hina sjónrænu framsetningu þessara þátta. Í innsetningum hennar má finna jafnt nýjustu tækni í formi myndbanda á tölvuskjáum sem og aldagamla hefð íslenskra hannyrða og undanfarin ár hafa þættir vísindalegra rannsókna og skrásetningar orðið æ fyrirferðarmeiri.
Aðgöngumiði á safnið gildir.
Sýning:
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.