7. maí 2023 - 11:00
Fjölskylduleiðsögn og listasmiðja
Staður viðburðar:
Ásmundarsafn
Leikum að list! Fyrsta sunnudag í hverjum mánuði.
Sunnudaginn 7. maí kl. 11.00 verður fjölskylduleiðsögn og listasmiðja í Ásmundarsafni fyrir börn og fjölskyldur. Eftir stutta leiðsögn um sýninguna Sigga Björg og Ásmundur Sveinsson: Andardráttur á glugga verður spennandi skrímslasmiðja þar sem unnið er með einþrykk.
Dagskráin er miðuð að því að börn komi í fylgd fullorðinna og að heimsóknin sé þannig skemmtileg og skapandi samvera milli kynslóða. Skráning í móttöku við komu.
Frítt fyrir börn yngri en 18 ára.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.