7. maí 2023 - 11:00

Fjölskylduleiðsögn og listasmiðja

Staður viðburðar: 
Ásmundarsafn

Leikum að list! Fyrsta sunnudag í hverjum mánuði. 

Sunnudaginn 7. maí kl. 11.00 verður fjölskylduleiðsögn og listasmiðja í Ásmundarsafni fyrir börn og fjölskyldur. Eftir stutta leiðsögn um sýninguna Sigga Björg og Ásmundur Sveinsson: Andardráttur á glugga verður spennandi skrímslasmiðja þar sem unnið er með einþrykk.

Dagskráin er miðuð að því að börn komi í fylgd fullorðinna og að heimsóknin sé þannig skemmtileg og skapandi samvera milli kynslóða.  Skráning í mót­töku við komu.

Frítt fyrir börn yngri en 18 ára. 

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.