Leiðsögn: Víkurskóli
Nemendur úr 10. bekk Víkurskóla munu eiga samtal um sýninguna Myndlistin þeirra sunnudagana 15. og 22. október kl. 15.00.
Sýningin Myndlistin okkar var opnuð á Kjarvalsstöðum á Menningarnótt. Inni í sýningarsalnum er kubbur þar sem settar eru upp smásýningar undir heitinu Myndlistin þeirra.
Þar býður safnið samstarfsaðilum sínum og fastagestum gegnum árin að velja saman verk eftir eigin höfði. Gestasýningarstjórar í Kubbnum að þessu sinni eru nemendur úr 10. bekk Víkurskóla.
Víkurskóli hefur verið í virkum samskiptum við Listasafn Reykjavíkur. Skólinn heimsækir safnið reglulega og nemendur unnu sérstakar sýningar í tengslum við Abrakadabra sýninguna í Hafnarhúsi haustið 2021.
Nemendurnir létu setningar eins og „Enginn er eins“, „Muna að horfa á björtu hliðarnar“ og „Þú ert listaverk“ leiða val sitt á verkum úr safneigninni.
Frítt fyrir yngri en 18 ára.