Opnunartímar
10.00-17.00
Fimmtudaga
10.00-22.00
Í þremur byggingum Listasafns Reykjavíkur, miðsvæðis í borginni, Hafnarhúsi, Kjarvalsstöðum og Ásmundarsafni eru reglulega sýnd verk eftir þrjá þekktustu listamenn þjóðarinnar, Erró, Kjarval og Ásmund Sveinsson auk fjölbreyttra innlendra og alþjóðlegra sýninga. Safnið er einnig vettvangur fyrir ungt og upprennandi hæfileikafólk.
1450 kr.
Bóka skólahóp
Tekið á móti skólahópum með kennurum án endurgjalds.
Leiðsögn fyrir hópa á opnunartíma
25.150 kr. + 2.350 kr. aðgangseyrir fyrir hvern gest. Ef hópurinn samanstendur af 10 gestum eða fleirum er verðið 25.150 kr. + 1.450 fyrir hvern gest.
Leiðsögn fyrir hópa utan opnunartíma
Allt að 30 gestir: heildarverð 70.500 kr. (aðgöngumiði innifalinn). 30+ gestir: heildarverð 94.600 kr. (aðgöngumiði innifalinn). Hægt er að panta léttar veitingar skv. samkomulagi.
Nánari upplýsingar í síma 411 6400 eða á fraedsludeild hjá reykjavik.is
Góð aðstaða er fyrir börn og fjölskyldur í Stofunni á annari hæð Hafnarhússins, í Hugmyndasmiðjunni á Kjarvalsstöðum og í Leyniskúffunni í Ásmundarsafni.
Aðgöngumiðinn gildir í sólarhring í Hafnarhús, á Kjarvalsstaði og í Ásmundarsafn. Handhafar eftirfarandi korta fá frítt á sýningar og viðburði á vegum safnsins, nema annað sé tekið fram: Árskort Listasafns Reykjavíkur, Menningarkort Reykjavíkur, ICOM, FÍSOS, SÍM og FÍMK.
Leiðsögn þarf að panta með góðum fyrirvara.
Stakur miði í Ásmundarsafn kostar 1.450 kr.
Veitingastaðurinn Klambrar Bistrø á Kjarvalsstöðum, sími 411 6425.
Opnunartími um jól og áramót
Hafnarhús
Opið 26. des.: 13–17.00
Opið 31. des.: 10-14.00
Opið 1. jan.: 13-17.00
Lokað 24. og 25. des.
Kjarvalsstaðir
Opið 26. des.: 13–17.00
Lokað 24., 25., 31. des. og 1. jan.
Ásmundarsafn
Opið 26. des.: 13–17.00
Lokað 24., 25., 31. des. og 1. jan.
Opnunartími um páska
Listasafn Reykjavíkur er lokað á páskadag, aðra daga er opið samkvæmt venju.
Reykjavík Grapevine hefur útnefnt Listasafn Reykjavíkur Besta Listasafn Reykjavíkurborgar árin 2019, 2020, 2021 og 2022.
Árskort Listasafns Reykjavíkur veita aðgang að öllum sýningum og viðburðum á vegum safnsins, nema annað sé tekið fram. Árskortin veita einnig 10% afslátt í safnverslunum Listasafns Reykjavíkur og 5% á veitingastaðnum á Kjarvalsstöðum. Hægt er að kaupa árskortin í móttökum safnhúsanna þriggja.
Verð: Árskort - 5.750 kr. / Árskort +1 - 8.650 kr. / Árskort <28 ára - 3.990 kr.
Menningarkort Reykjavíkur er hagkvæm leið til að njóta menningarlífsins í Reykjavíkurborg á betri kjörum. Menningarkortið veitir aðgang að Listasafni Reykjavíkur; Hafnarhúsi, Kjarvalsstöðum og Ásmundarsafni, Borgarsögusafni Reykjavíkur; Árbæjarsafni, Sjóminjasafninu í Reykjavík, Landnámssýningunni, Ljósmyndasafninu og afslátt í Viðeyjarferjuna. Hjá Borgarbókasafni Reykjavíkur fæst bókasafnskort gegn framvísun kortsins. Menningarkortið veitir einnig afslætti og tilboð á fjölmarga viðburði, tónleika, kvikmyndahús og veitingahús. Verð 8.130 kr., gildistími eitt ár. Menningarkort 67+. Verð 2.350 kr. Nánari upplýsingar: menningarkort.is
Upplýsingar um aðgengi í Listasafn Reykjavíkur
Aðgengi fyrir hreyfihamlaða er mjög gott í Hafnarhúsi og á Kjarvalsstöðum og hægt er að fá hjólastól lánaðan á báðum stöðum.
Kerrur, vagnar og læstir skápar Í Hafnarhúsi og á Kjarvalsstöðum er hægt að geyma barnavagna og fá lánaðar léttar kerrur og magapoka. Þar eru einnig læstir skápar fyrir töskur og bakpoka. Barnavagnar, bakpokar, stórar töskur, regnhlífar og aðrir fyrirferðarmiklir hlutir eru ekki leyfðir í sýningarsölunum af öryggisástæðum.
Ljósmyndun Heimilt er að ljósmynda sýningar til einkanota nema þess sé sérstaklega getið.
Umgengnisreglur Gestir eru vinsamlegast beðnir um að snerta ekki listaverkin í safninu. Matur og drykkir eru ekki leyfðir í sýningarsölunum.
Óheimilt er að koma með dýr á safnið nema um sé að ræða hjálparhunda.