Veldu ár

2024 (9)
2023 (22)
2022 (16)
2021 (21)
2020 (21)
2019 (27)
2018 (19)
2017 (21)
2016 (18)
2015 (20)
2014 (19)
2013 (17)
2012 (17)
2011 (22)
2010 (26)
2009 (25)
2008 (24)
2007 (26)
2006 (14)
2005 (16)
2004 (24)
2003 (32)
2002 (18)
2001 (20)
2000 (19)
1999 (13)
1998 (11)
1997 (14)
1996 (17)
1995 (17)
1994 (17)
1993 (22)
1992 (27)
1991 (24)
1990 (24)
1989 (25)
1988 (38)
1987 (38)
1986 (26)
1985 (28)
1984 (34)
1983 (28)
1982 (30)
1981 (26)
1980 (27)
1979 (21)
1978 (23)
1977 (21)
1976 (24)
1975 (19)
1974 (11)
1973 (11)
16.03.2017
07.05.2017

D30 Ragnar Þórisson: Mannslíki

Málverk Ragnars eru afrakstur áralangra tilrauna hans þar sem hann málar iðulega manneskjur í hlutlausu umhverfi. Uppstillingar hans sýna fólk á margræðan hátt, sveipað dulúðugu andrúmslofti. Þar blandast stórir, marglaga litafletir við fínlega teikningu. Verkin eru óræð og gefa til kynna lágstemmda hreyfingu bæði í tíma og rúmi þannig að svo virðist sem listamaðurinn reyni að fanga eitthvað sem auganu er dulið alla jafna.

Í málverkum Ragnars sést móta fyrir manneskjum, sveipuðum dulúðugu andrúmslofti. Stórir, marglaga litafletir blandast við fínlega pensilskrift. Verkin eru margræð og gefa til kynna lágstemmda hreyfingu bæði í tíma og rúmi þannig að svo virðist sem listamaðurinn reyni að fanga eitthvað sem auganu er dulið alla jafna. Einhver viðsnúningur á sér stað. Í stað mynda af manneskjum birtast manneskjur sem myndir.

Málverkin taka á sig mannsmynd í gegnum liti og línur listamannsins; þau eru í mannslíki. Hugur okkar áhorfenda skáldar í eyðurnar og mótar persónur. Þetta eru ólíkir einstaklingar, hver með sín karaktereinkenni, fangaðir í mynd sem tjáir tilfinningu og jafnvel sögu. Rétt eins og listamaðurinn, köllum við fram ýmis minni – fólk sem við þekkjum, ljósmyndir úr fjölskyldualbúmum, sögupersónur úr kvikmyndum, portrettmyndir listasögunnar og þar fram eftir götunum.  Málverkin á sýningunni eru frá 2013-17 og bera enga titla. Við höfum því fátt að styðjast við nema myndmál Ragnars og eigið hugarflug.

Ragnar er þrítugasti listamaðurinn sem sýnir í sýningarröð D-salar. Hann er fæddur árið 1977 og útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2010. Hann hefur haldið nokkrar einkasýningar, tekið þátt í samsýningum og í sumar tekur hann þátt í hinum Norræna tvíæringi, Momentum, í Noregi. 

Í D-sal Hafnarhússins eru að jafnaði sýnd verk eftir listamenn sem ekki hafa áður haldið einkasýningar í stærri söfnum landsins. Markmið sýningaraðarinnar er að gefa efnilegum listamönnum tækifæri til að vinna innan veggja safnsins og beina athygli gesta að nýjum og áhugaverðum hræringum innan listheimsins. Á árinu 2017 eru áætlaðar alls fjórar sýningar í sýningaröðinni.

 

Listamaður/-menn: 
Sýningarstjóri/-ar: 
Markús Þór Andrésson
Boðskort: 
Myndir frá opnun: 

Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.

Viðburðir tengdir sýningu

D30 Ragnar Þórisson: Mannslíki
Hafnarhús
16. mars 2017 - 17:00
Hafnarhús
19. mars 2017 - 15:00