Veldu ár
Arkitektúr - Kvennalistahátíð
Með sýningunni er leitast við að veita innsýn í þau verkefni, sem íslenskar konur í arkitektúr hafa fengist við á undanförnum árum. Þrettán konur eiga hér verk. Flest verkin hafa verið útfærð, eða framkvæmdir standa yfir. Nokkur eru huglæg, þ.e.a.s. aðeins til á teikningum. Þeir arkitektar sem eiga verk á sýningunni, hafa stundað nám víða um heim. Sumar starfa hér heima, aðrar erlendis, svo sem í Frakklandi, Þýskalandi og Svíþjóð. Nokkrar hafa nýlega lokið námi, en aðrar hafa lengri starfsferil að baki. Það er ánægjulegt, að hér eru verk eftir Halldóru Briem Ek, en hún útskrifaðist fyrst íslenskra kvenna í arkitektúr árið 1940.
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.