Veldu ár
Borghildur Óskarsdóttir: Aðgát
Borghildur Óskarsdóttir (f. 1942) á merkan listferil að baki sem spannar um sex áratugi. Hún er enn að því listin er samofin lífi hennar og starfi.
Á sýningunni er varpað ljósi á frjóan og marþættan ferill Borghildar, listnálgun og verk, en samhliða sýningunni er gefin út vönduð bók þar sem verk hennar eru sett í samhengi við listir og fræði, sögu og samtíma.
Verk Borghildar eiga erindi við samtímann, sem einkennist af viðleitni til að endurhugsa þau spor sem maðurinn hefur markað í náttúruna, himinn og jörð með lífríki sínu öllu.
Sýningarstjóri er Aðalheiður L. Guðmundsdóttir en sýningin er afrakstur rannsóknar Aðalheiðar á ferli Borghildar. Listasafn Reykjavíkur hlaut Öndvegisstyrk Safnaráðs árið 2021 til þess að rannsaka hlut kvenna í íslenskri myndlist í samstarfi við námsbraut í listfræði við Háskóla Íslands. Sýningin er önnur af þremur sem úr þessum Öndvegisstyrk kemur, en fyrsta sýningin var Hildur Hákonardóttir: Rauður þráður sem var opnuð á Kjarvalsstöðum 14. janúar 2023.
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.