Veldu ár
Brynhildur Þorgeirsdóttir: Frumefni náttúrunnar
Brynhildur Þorgeirsdóttir (1955) stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands, Gerrit Rietveld Academie í Hollandi og California College of Arts and Crafts, auk sérnáms í gleri við Orrefors í Svíþjóð og Pilchuck Glass School í Bandaríkjunum.
Verk hennar er að finna í öllum helstu söfnum landsins auk safna í ýmsum löndum austan hafs og vestan. Hún hefur hlotið styrki og viðurkenningar fyrir verk sín og meðal annars tvisvar fengið úthlutun úr The Pollock- Krasner Foundation.
Af verkum í almenningsrýmum má nefna Landslagsmynd í Garðabæ, Klett sem stendur við Leirvoginn í Reykjavík, og Pendúl hússins í Menntaskólanum í Kópavogi. Einnig stendur útilistaverk eftir Brynhildi í Alingsås í Svíþjóð.
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.