Skúlptúrgerð fyrir 6-9 ára - skráning hafin
Hvað er skúlptúr? Námskeiðið fer fram í ævintýralegu umhverfi Ásmundarsafns á ári útilistaverka í Listasafni Reykjavíkur.
Nemendur fá að kynnast ólíkum efnivið við listsköpun og byggja sitt eigið listaverk. Nemendur fá leiðsögn í muninum á tví- og þrívídd, hvernig mismunandi sjónarhorn geta skipt sköpum og fræðast um það ótrúlega efnisúrval sem heimurinn hefur upp á að bjóða til listsköpunar.
Leiðbeinandi: Sara Riel myndlistarmaður
Þátttakendur þurfa að mæta í útifötum sem mega skemmast og hafa mikið og gott nesti meðferðis.
Fyrra námskeið: 11.-14. júní kl. 9-12.00.
Skráningu lýkur 5. júní.
Skráning hér
Seinna námskeið: 18. - 21. júní kl. 9-12.00.
Skráningu lýkur 12. júní.
Skráning hér
Ath. takmarkaður fjöldi.
Námskeiðsgjald: 16.000 kr.
Allur efniviður innifalinn í verðinu.