Veldu ár
D9 Jóna Hlíf Halldórsdóttir
Undanfarin tvö ár hefur Jóna Hlíf Halldórsdóttir þróað þann stíl sem einkennir verk hennar, þar sem hún sameinar á sérstakan hátt texta og sjónræna þætti verka sinna. Hún teflir saman orðum og myndum sem virðast ótengd og miðlar þannig gjarnan einungis einni hugmynd sem hægt er að skilja í tengslum við aðra. Jóna Hlíf nálgast blandaða tækni innsetninga sinna með sömu grundvallarhugsun og einstök verk. Innsetningin er byggð umhverfis lítilvæga uppsprettu, og hún tjáir túlkun sína á myndhverfan hátt með texta, hljóði og myndum.
Í Full af engu heldur Jóna Hlíf áfram að tjá upplifanir sínar sem kona og nánar tiltekið íslensk kona. Í samhengi við hið hvíta rými, leikur hún sér á djarfan hátt með hefðbundnar og jafnvel ómerkilegar hugmyndir sem konur hafa um sjálfar sig.
Jóna Hlíf Halldórsdóttir útskrifaðist með mastersgráðu frá Glasgow School of Art í Skotlandi árið 2007, eftir nám við Myndlistaskólann á Akureyri. Hún hefur haldið einkasýningar
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.