Veldu ár
Ég hef aldrei séð fígúratíft rafmagn
„Ég hef leyft mér að gera non-fíguratífa mynd af rafmagninu, því ég hef aldrei séð fígúratíft rafmagn.“
Ásmundur Sveinson (1893-1982) var frumkvöðull í íslenskri höggmyndalist. Hann nam klassíska höggmyndalist og vann í hefðbundin efni framan af en á sjöunda áratugnum vék hann frá þeim fígúratífu aðferðum sem áður einkenndu verk hans og fór í auknum mæli að nota óhlutbundið myndmál. Viðfangsefni hans urðu óefniskenndari þar sem hugtök á borð við lífsorku og rafmagn urðu honum hugleikin. Óhefðbundinn efniviður fór að verða áberandi í verkum hans og stýrði gjarnan útkomu einstakra verka; um leið tekur hann upp frjálsari aðferðir með því að vinna beint í efnið. Í kjölfar þessara breytinga fer Ásmundur að huga enn frekar að innra og ytra rými verka sinna, og með hvaða hætti þau virkja rýmið sem umlykur þau. Verkið er ekki bara efnið sjálft heldur ljósið sem leikur um það.
Tilraunir formrænnar hugsunnar eru það sem sameinar þá listamenn sem eiga verk á sýningunni, hvort sem um er að ræða eiginlega þrívíða skúlptúra eða abstrakt rýmisverk. Fíngerðar samsetningar myndrænnar hugsunar raðast saman í taktföstum ryþma og mynda fínstilltan hljóm sem segja má að ómi um húsið.
Hrafnhildur Halldórsdóttir (f. 1973), Áslaug Í. K. Friðjónsdóttir (f. 1981) og Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir (f. 1976) glíma við hið umlykjandi rými á meðan verk Baldurs Geirs Bragasonar (f. 1976), Sólveigar Einarsdóttur (f. 1975) og Þuríðar Rósar Sigurþórsdóttur (f. 1975) takast fremur á við hinn eiginlega skúlptúr eða þrívíða hlut. Fundinn efniviður verður gjarnan að meginuppistöðu í verkum þeirra Þórs Sigurþórssonar (f. 1977), Bjarkar Viggósdóttur (f. 1982) og Ragnars Más Nikulássonar (f. 1985). Hlutir losna undan sínu eiginlega notagildi og vekja með áhorfandanum framandi hugrenningatengsl í þeirri framsetningu sem þeim hefur verið valin.
Þegar stillt er saman verkum Ásmundar og samtímalistamanna endurspeglast tilraunakenndur tíðarandi tveggja tíma.
Sýningarstjórar: Klara Þórhallsdóttir og Kristín Dagmar Jóhannesdóttir.
Listamenn:
Áslaug Í. K. Friðjónsdóttir (f. 1981)
Áslaug útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2006 og lauk síðar mastersnámi frá School of Visual Arts, New York árið 2009.
Meðal sýninga eru: 2012, Rými málverksins, Listasafnið á Akureyri // 2011, Festisvall 2, Artíma gallerí, Reykjavík // 2009, A New Currency, 55 Delancey Street, New York // 2009, Work Out, OTOM Gym, Brooklyn, NY // 2009, Exhaust Exhaus, The Compound Warehouse, Philadelphia // 2009, Cardsharper, The Visual Arts Gallery, Chelsea, NYC // 2008, Sjónheyrn, Skaftfell, Seyðisfjörður // 2006, samsýning, Klink & Bank, Reykjavík // 2005, Break, Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Reykjavik.
Baldur Geir Bragason (f. 1976)
Baldur útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2001 og lauk síðar mastersnámi frá skúlptúrdeild Kunsthochschule Berlin í Þýskalandi árið 2008.
Meðal sýninga eru: 2013, Líkist (einkasýning), Kunstschlager, Reykjavík // 2012, Nautn og notagildi, Listasafn Árnesinga, Hveragerði // 2011, Borðar (einkasýning), Suðsuðvestur, Reykjanesbæ 2011, Sjónarmið - á mótum myndlistar og heimspeki, Listasafn Reykjavíkur, Reykjavík // 2011, Expanded painting, Prague biennale 4, Prag // // 2008, Yfirborðskennd (einkasýning) kling og bang, Reykjavík // 2008, Noname, Gallery Ackerstrasse 18, Berlín // 2007, Torstrasse 111, Berlín // 2006, Karin Sander, Audiotour, Schirn Kunsthalle, Frankfurt.
Björk Viggósdóttir (f. 1982)
Björk lauk námi frá Listaháskóla Íslands árið 2006. Hún hefur tekið þátt í fjölda listviðburða á sviði myndlistar, tónlistar, leikhúss og dans, bæði erlendis og á Íslandi.
Meðal sýningarverkefna eru: 2013, Aðdráttarafl (einkasýning), Hafnarborg, Hafnarfjörður // 2012, VEISLA, Yunnan Contemporary, Kunming, Kína // 2012, Zinkovy International Arts Festival, Zinkovy, Tékkland // 2012, Soundscape (circadian), MMX- Berlin Gallery Week, Berlín // 2011, Flugdrekar (einkasýning), Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús, Reykjavík // 2010, Fresh Meat, dansverk í samvinnu við Sigríði Soffíu Níelsdóttur og Snædísi Ingadóttur, Rose Theater, London og Leikhúsbatteríð, Reykjavík // 2006, Bakkynjur, Þjóðleikhúsið, Reykjavík.
Hrafnhildur Halldórsdóttir (f. 1973)
Hrafnhildur lauk útskrifaðist með B.A. gráðu frá Glasgow School of Art árið 2001 og lauk síðar MFA gráðu frá sama skóla árið 2007. Sótti einnig nám í myndlist og ljósmyndun í Danmörku (1997-1998, Fine Art Photography, K.U.B.A., Kaupmannahöfn og 1996, Fine Art, Kunsthøjskolen, Holbæk, Danmörk). Hún býr og starfar í Glasgow, Skotlandi.
Meðal sýninga eru: 2013, Riff (part of Ten Days of Summer) Queens Park Railway Club // 2012, I put a spell on you (einkasýning), Infernoesque project space, Berlín // 2010, Fever (einkasýning), Glasgow Project Room, Glasgow // 2008 , ‘cos I love and I live primitive’ (einkasýning), Galleri Box, Gautaborg // 2008, A. Vermin at The State Bar, Glasgow International, Glasgow // 2006, Zig-Zag Wanderer (einkasýning), Overgaden Institute for Contemporary Art, Kaupmannahöfn // 2004, Look out for my Love, it’s in your neighbourhood (einkasýning), Intermedia Gallery, Glasgow og Gallerí Hlemmur, Reykjavík // 2002, No, it’s not a case of being lonely we have here, I’ve been working on this palmtree for eighty-seven years, NIFCA project space, Suomenlinna, Helsinki.
Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir (f. 1976)
Ingunn útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2007, áður hafði hún stundað nám við málaradeild Mynd – og handíðaskólann (1998-1999) auk þess að hafa lokið B.A. námi í listasögu frá Háskólanum í Árósum, Danmörku árið 2002. Hún starfar einnig í listateyminu Hugsteypa ásamt Þórdísi Jóhannesdóttur.
Meðal sýninga eru: 2013, Lög unga fólksins, Listasafn Reykjanesbæjar, Keflavík // 2012, Nautn og notagildi, Listasafn Árnesinga, Hveragerði // 2012, Rými málverksins, Listasafn Akureyrar, Akureyri // 2011, Four Rooms, Centre for Contemporary Art Ujazdowski Castle, Varsjá, Póland // 2011, Painting Overall, Prague Biennale, Tékkland // 2010, Ljósbrot (einkasýning), Hafnarborg, Hafnarfirði // 2009, ARTVILNIUS´09, Contemporary International Art Fair, Vilnius, Litháen (Hugsteypan) // 2009, MINJAR, náttúra í myndlist // myndlist í náttúru, Náttúrufræðistofa Kópavogs (Hugsteypan) // 2008, Painting Site (einkasýning), Cuxhavener Kunstverein, Cuxhaven, Þýskalandi // 2008, Aurora Borealis, Magnetism and Light, Spedition, Bremen, Þýskaland // 2006, Hotspo(r)t, Kunstverein Springhornhof, Neuenkirchen, Þýskaland.
Ragnar Már Nikulásson (f. 1985)
Ragnar Már stundar nú meistaranám við Listaháskóla Íslands sem hann hóf haustið 2012. Þar á undan hafði hann lokið B.A. námi í grafískri hönnun við sama skóla árið 2010.
Meðal sýninga eru: 2013, TROPOP 3.0, Artíma gallerí, Reykjavík // 2013, PASTÍS 11/11, Listasafn Íslands // 2013, Samþætting, Listasafn Einars Jónssonar, Reykjavík // 2012, Og allar girndir lausbeislaðar (einkasýning), Kling og bang, Reykjavík // 2012, FESTISVALL 3.5, Artíma gallerí, Reykjavík // 2012, falin (einkasýning), Kling og bang, Reykjavík // 2011, Marglaga skynjunarskóli, Kling og bang, Reykjavík // 2011, Tropikal Optikal, Lunga, Seyðisfjörður // 2011, Trolley presents TJ Boulting presenting Kling & Bang, TJ Boulting, London.
Sólveig Einarsdóttir (f. 1975)
Sólveig útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2003 og lauk MFA gráðu frá Glasgow School of Art árið 2010. Hún býr og starfar í Glasgow, Skotlandi.
Meðal sýninga eru: 2012, White Light, Arch 24, Glasgow // 2012, Sum of substance, Jotta at AAF, London // 2010, Be the Hammer or the Anvil, Generator Projects, Dundee // 2010, Definate Article, Artnews Projects c/o Bethanien, Berlín // 2009, Interim exhibition, Mackintosh Gallery, Glasgow // 2007, Sfumatura Palindrome, A. Vermin, Glasgow // 2007, And the He Likes the Me, Transmission, Glasgow // 2006, Project Patterson, Gallerí Suðsuðvestur // 2006, Likimain, Jetty Barracks Gallery, Helsinki // 2005, Berliner Liste, Berlín.
Þór Sigurþórsson (f. 1977)
Þór lauk BA prófi í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2002 stundaði svo nám í Academy Der Bildenden Kunste í Vín. Árið 2008 útskrifaðist hann með MFA í myndlist frá School of Visual Arts í New York.
Meðal sýninga eru: 2013, Skjáblinda (einkasýning), Gallerí Þoka, Reykjavík // 2013, Parlor Show, Smiðjuvegur 10, Reykjavík // 2013, Calculated Sustainability Without Decisions, Grandagarður, Reykjavík // 2012-2013, Johnny´s #1-2, Johnny´s Project (ásamt Darra Lorenzen og Erni Helgasyni), Reykjavík // 2010, Material Reciprocity, Possible Projects, New York // 2010, A Minus Suitcase, Jack the Pelican, New York // 2009, Material Reciprocity, Possible Projects, New York // Vector: Issue 2, Max Protecht Gallery, New York // 2008, Missing Dumby Project, 12th Annual DUMBO, Art Under the Bridge Festival, Brooklyn, NY // 2008, C´mon Shake It!- AH AH Check It! OOH OOH, Massimo Audiello-New York // 2008, Left and Leaving, Visual Arts Gallery, New York // 2006, Pow Wow, Gallerí Banananas, Reykjavik // 2005, Grassroad, Nýlistasafnið, Reykjavík // 2005, Krútt, Nýlistasafnið, Reykjavík.
Þuríður Rós Sigurþórsdóttir (f. 1975)
Þuríður útskrifaðist með MFA gráðu frá School of Visual Arts, New York árið 2008. Áður, eða árið 2000 hafði hún lokið námi í fatahönnun frá Central St. Martins College of Art and Design, London. Hún starfar einnig í hönnunarteyminu Vík Prjónsdóttir. Hún býr og starfar í New York.
Meðal sýninga eru: 2013, Vík Prónsdóttir & Eley Kishimoto, Hönnunarmars í Reykjavík // 2012, Hinumeginn (einkasýning), Hafnarborg, Hafnarfjörður // 2011, Nordic Fashion Biennale, Nordic Heritage Museum, Seattle // 2011, Chinese take Out, Art In General, New York // 2010, Hidden World, Spark Design Space, Reykjavik, Iceland // 2010 Possible Press Project, New York // 2009, Ripped From Something Bigger, Skaftfell, Seyðisfjörður // 2009, No Soul For Sale, X-Initiative, New York // 2009, Work Out, Otom, Brooklyn, New York // 2008, C’mon shake it! Ah ah check it! Ooh ooh!, Massimo Audiello Gallery, New York // 2008, 100% Design, Tokyo, Japan // 2007, Scandinavian Grace, New York // 2007, Magma/Kvika, Reykjavik Art Museum - Kjarvalsstaðir, Reykjavík // 2003, Circuit, Museum of Contemporary Art, Barcelona.
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.