Veldu ár
Erró: Listamaður verður til
Á sýningunni má sjá ýmis verk Erró frá barnsaldri þar til hann hélt sína fyrstu einkasýningu á Íslandi í Listamannaskálanum árið 1957. Sýndar eru myndir sem hann gerði á uppvaxtarárum sínum á Kirkjubæjarklaustri, á námskeiði sem unglingur í Handíðaskólanum í Reykjavík og síðar sem fullgildur nemandi við þann skóla, ásamt myndum frá námsárum hans við Akademíuna í Osló, Flórens og Ravenna.
Öll verkin á sýningunni eru úr Errósafni Listasafns Reykjavíkur og gefa áhugaverða mynd af hæfileikaríkum og vinnusömum, ungum manni sem frá barnæsku einsetti sér að verða listamaður.
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.