Veldu ár
Íslensk náttúrusýn
Íslensk náttúra hefur ætíð sótt á íslenska listamenn, og á 20. öld hefur náttúran verið eitt af helstu viðfangsefnunum í íslenskri myndlist. Íslensk náttúra er uppspretta sérstakra forma, ljóss og lita, og ekki síst voldugur aflvaki tilfinninga, en hver listamaður hefur nálgast náttúruna á sinn veg; sérhver þeirra hefur valið sína eigin leið til tjáningar, túlkunar, samræðu og hyllingar.
Á þessari sýningu er brugðið ljósi á glímu íslenskra myndlistarmanna við náttúru Íslands. Hér er fjöldi listaverka, unnin á ólíkum listrænum forsendum, en uppruni þeirra allra er samur: hið óhjákvæmilega stefnumót íslensks listamanns við land sitt.
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.