Veldu ár
Ólafur Gíslason: Vernissage
Skúlptúr, innsetning, verk eftir Ólaf Gíslason. Sýningin bar yfirskriftina "Vernissage". Ólafur er í hópi yngri myndlistarmanna og hefur haslað sér völll á vettvangi hugmyndafræðilegrar myndlistar. Hann fer ótroðnar slóðir og hefur vakið athygli fyrir öflugt hugmyndaflug og frumlega framsetningu.
Með þessari sýningu kemur hann enn á óvart - ætlar sýningargestum að lesa í myndmálið allt eftir upplagi og innsýn hvers og eins. Ólafur er fæddur 1962, nam í MHÍ 1980-83 og Hochschule für bildende Künste í Hamborg 1983-88. Ólafur hefur haldið 7 einkasýningar á árunum 1986-1994 og verið með í 7 samsýningum á árunum 1988-93.
Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.