12. júní 2018 - 10:00 til 22:00
13. júní 2018 - 10:00 til 22:00
14. júní 2018 - 10:00 til 22:00
15. júní 2018 - 10:00 til 22:00
16. júní 2018 - 10:00 til 22:00

Einskismannsland: Opið til kl. 22.00

Einskismannsland opið til kl. 22 í Hafnarhúsi
Staður viðburðar: 
Hafnarhús

Í tilefni af Listahátíð í Reykjavík er sýningin Einskismannsland – Ríkir þar fegurðin ein? í Hafnarhúsi opin kl. 10-22.00 til 16. júní, og Klúbbur Listahátíðar og vínbarinn Partí & kjaftæði kl. 11-23.00.

Klúbbur Listahátíðar er starfræktur í Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsi dagana 2.-17. júní. Í klúbbnum verða fjölbreyttir, ókeypis viðburðir dag hvern; í hádegi, síðdegis og á kvöldin. Klúbburinn verður opinn til kl. 23.00 til 16. júní og til kl. 17.00 á 17. júní. Í klúbbnum verða seldar léttar veitingar, súpur, samlokur og drykkir. Eldabuskurnar Ólafur Örn Ólafsson og Kjartan Óli Guðmundsson hafa yfirumsjón með veitingunum. 

Þeir félagar, Ólafur og Kjartan, hafa einnig hreiðrað um sig á 2. hæð Hafnarhússins með popp-upp vínbarinn Partí & kjaftæði, þar sem áhersla verður á náttúruvín, náttúrumat og 90's hip hop. Þar verður einnig opið til kl. 23.00 á kvöldin til 16. júní og til kl. 17.00 á 17 júní.

Ókeypis er inn á alla viðburði hjá Klúbbi Listahátíðar í Hafnarhúsi.