Klúbbur Listahátíðar: Einskismannsland - listamannaspjall með sýnendum
Markús Þór Andrésson leiðir listamannaspjall í Klúbbnum við Guðrúnu Kristjánsdóttur og Kristinn E. Hrafnsson sem eiga verk á sýningunni Einskismannsland: Ríkir þar fegurðin ein?
Landið hefur verið Íslendingum bæði huglægt tákn og efnisleg auðlind. Á sýningunni Einskismannsland: Ríkir þar fegurðin ein? er sjónum beint að verðmætamati Íslendinga til náttúrunnar og tengsla við víðerni landsins.
Sýnd eru verk íslenskra listamanna frá ýmsum tímum, allt frá frumkvöðlum íslenskrar málaralistar þegar landið og víðerni þess voru táknmyndir frelsis og sjálfstæðis, til verka listamanna samtímans með vísan í hnattræna umræðu um gildi hins ósnortna og nýtingu auðlinda. Með listsköpun sinni hafa myndlistarmenn haft áhrif á tengsl manna við umhverfi sitt. Sýningin er tvískipt, sögulegur hluti hennar á Kjarvalsstöðum en verk eftir listamenn 21. aldarinnar eru sýnd í Hafnarhúsi. Jafnframt er tekist á við áleitnar spurningar um inntak sýningarinnar í viðamikilli dagskrá samhliða henni. Verkefnið er hluti af dagskrá aldarafmælis fullveldis Íslands.
Meðal listamanna eru Þórarinn B. Þorláksson, Ásgrímur Jónsson, Jóhannes S. Kjarval, Jón Stefánsson, Kristín Jónsdóttir, Ósk Vilhjálmsdóttir, Anna Líndal, Ólafur Elíasson, Einar Falur Ingólfsson, Rúrí, Georg Guðni, Ragna Róbertsdóttir, Sigurður Guðjónsson.