29. júní 2023 - 20:00

Leiðsögn listamanna: Eggert og Rúrí

Eggert Pétursson og Rúrí
Staður viðburðar: 
Hafnarhús

Listamennirnir Eggert Pétursson og Rúrí segja frá verkum sínum á sýningunni Kviksjá: Íslensk myndlist á 21. öld í Hafnarhúsi.

Á sýningunni gefur að líta úrval af þeim verkum sem Listasafn Reykjavíkur hefur eignast síðustu tvo áratugi. Verkin gefa innsýn inn í þá breidd og þær áherslur sem hafa verið að mótast og gerjast í íslensku listalífi frá aldamótum 2000 til dagsins í dag.

Innsetningin Þann dag...  eftir Rúrí er frá 2001 og heiðrar minningu Sigríðar frá Brattholti, bóndadóttur sem gjarnan er sögð fyrsti náttúruverndarsinninn hér á landi. Hún barðist fyrir vernd hins glæsilega Gullfoss sem hugmyndir voru uppi um að virkja snemma á 20. öld. Rúrí hefur varið drjúgum hluta ferils síns í þemu tengt umhverfi, vatni og fossum.

Verk Eggerts Péturssonar er frá 2022. Nákvæm og allt að því svimandi sýn Eggerts á íslenskan gróður á uppruna sinn í eiginlekum náttúrunnar og eðli mannsins sem túlkar hana. Verkin hans eru máluð yfir langan tíma og í mörgum lögum. Þar festir hann í sessi minningar um dvöl meðal plantna og blóma, sem færðar eru á striga með olíulitum eftir leiðum sem krefjast nákvæmni og þekkingar á efniviðunum: olíunni og náttúrunni.

 
 

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.