Leiðsögn með Markúsi
Markús Þór Andrésson, deildarstjóri miðlunar, verður með leiðsögn um sýninguna Myndlisitn okkar þar sem innsetning Ívars Valgarðssonar hefur tekið yfir sýningarrýmið á laugardaginn 4. nóvember kl. 14.00.
Sýningunni Myndlistin okkar lýkur helgina 3.–5. nóvember með innsetningu Ívars Valgarðssonar sem hlaut mjög góða kosningu í kosningaleik Listasafns Reykjavíkur á Betri Reykjavík, eða alls 181 atkvæði og hafnaði verkið í 12. sæti yfir stigahæstu listaverkin.
Vegna eðlis verksins, en það tekur allan Austursal Kjarvalsstaða, var ekki hægt að hafa það meðal annarra listaverka inni í sýningunni og því var ákveðið að gefa því andrými og pláss eina sýningarhelgi.
Innsetning Ívars var sýnd á Kjarvalsstöðum árið 1991 og vakti mikla athygli og umtal bæði gesta og gagnrýnenda.