29. október 2017 - 14:00

Leiðsögn: Ólöf K. Sigurðardóttir og Ólöf Gerður Sigfúsdóttir

Ólöf K. Sigurðardóttir og Ólöf Gerður Sigfúsdóttir
Staður viðburðar: 
Kjarvalsstaðir

Leiðsögn um sýninguna Leiðangur með Ólöfu Kristínu Sigurðardóttur, sýningarstjóra og safnstjóra Listasafns Reykjavíkur, og Ólöfu Gerði Sigfúsdóttur, forstöðumanni rannsókna og nýsköpunar við Listaháskóla Íslands. Ólöf Gerður skrifaði grein í sýningarskrá sýningarinnar Leiðangur þar sem hún fjallar um hvernig aðferðafræði rannsóknarlistar birtist í verkum Önnu.

Í innsetningum Önnu Líndal má finna jafnt nýjustu tækni í formi myndbanda á tölvuskjám sem og aldagamla hefð íslenskra hannyrða. Undanfarin ár hefur Anna unnið með vísindalegar rannsóknir og skrásetningar í tengslum við leiðangra Jöklarannsóknarfélags Íslands og skapað marglaga listaverk sem er fróðlegt og spennandi að fá að kynnast nánar.

Aðgöngumiði á safnið gildir.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.