6. nóvember 2022 - 14:00
Leiðsögn sýningarstjóra: Eftir stórhríðina
Staður viðburðar:
Ásmundarsafn
Aldís Snorradóttir og Edda Halldórsdóttir sýningarstjórar verða með leiðsögn um sýninguna Unndór Egill Jónsson og Ásmundur Sveinsson: Eftir stórhríðina í Ásmundarsafni sunnudaginn 6. nóvember kl. 14.00.
Skráning HÉR
Á sýningunni mætast myndhöggvarar tveggja tíma í samtali sem veitir nýja sín á arfleifð Ásmundar Sveinssonar ásamt því að kynna fyrir gestum ný verk starfandi listamanns. Að þessu sinni sýnir Unndór Egill Jónsson verk sín í samtali við verk Ásmundar en safnið hefur nú um nokkurt skeið unnið með arfleifð Ásmundar á þennan hátt.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.