13. mars 2021 - 11:00
Leikum að list: RAX fjölskylduleiðsögn með leikjum
Staður viðburðar:
Hafnarhús
Fjölskylduleiðsögn með leikjaívafi um sýningu Ragnars Axelssonar: Þar sem heimurinn bráðnar.
Ókeypis fyrir börn fram til 18 ára aldurs. Dagskráin er miðuð að því að börn komi í fylgd fullorðinna, leiðsögnin sé skemmtileg og skapandi samvera og samtal milli kynslóða.
Athugið að skráning fjölskyldu er nauðsynleg HÉR.
Tenglar:
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.