Listasmiðja – loðið og litríkt
Listasafn Reykjavíkur býður gestum safnsins upp á skemmtilega, loðna og litríka listasmiðju innblásna af hinni vinsælu sýningu Chromo Sapiens eftir Hrafnhildi Arnardóttur / Shoplifter. Listasmiðjan verður haldin í fjölskyldurýminu Stofunni laugardaginn 1. febrúar kl. 11.00 og 12.00 í Hafnarhúsi.
Athugið að nauðsynlegt er að skrá fjölskylduna um leið og keyptur er aðgangur á safnið. Handhafar Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur fá frítt á alla viðburði safnsins. Fyrir fullorðna gildir aðgöngumiði á safnið, en að sjálfsögðu er ókeypis fyrir börn fram til 18 ára aldurs. Gert er ráð fyrir að börn komi í fylgd fullorðinna – og fjölskyldan skemmti sér saman og hjálpist að.
Athugið einnig að það er takmarkaður fjöldi kemst að í listasmiðjunni að þessu sinni.
LEIKUM AÐ LIST er yfirskrift fjölskyldudagskrár Listasafns Reykjavíkur. Þar eru börn sérstaklega boðin velkomin í safnið ásamt foreldrum sínum til þess að skoða og upplifa myndlist í gegnum leiki og skemmtilegar umræður. Boðið er upp á fjölskylduleiðsagnir sem sniðnar eru að yngri áhorfendum um sýningar í öllum safnhúsunum. Þá eru listasmiðjur fyrir börn og fjölskyldur þeirra þar sem gaman er að skapa sín eigin listaverk saman eftir heimsókn í sýningarsalina. Við LEIKUM AÐ LIST reglulega allt árið um kring og það er um að gera að fylgjast með á dagskrársíðu safnsins. Fjölskyldurýmin eru síðan alltaf opin, Hugmyndasmiðjan á Kjarvalsstöðum, Stofa í Hafnarhúsinu og Augnablik í Ásmundarsafni.
Skráðu þig á póstlista Listasafns Reykjavíkur og fáðu upplýsingar um skemmtilega fjölskylduviðburði og aðrar uppákomur á vegum safnsins. Handhafar Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur fá frítt á alla viðburði safnsins.