Sýningaropnun D47 Logi Leó: Allt til þessa höfum við ekki skilið það dularmál sem berst frá þessum hljóðgjöfum
Sýningin Allt til þessa höfum við ekki skilið það dularmál sem berst frá þessum hljóðgjöfum með verkum eftir Loga Leó Gunnarsson verður opnuð í D sal Hafnarhússins, fimmtudaginn 16. febrúar kl. 20.00.
Logi Leó Gunnarsson er 47. listamaðurinn til að sýna í sýningarröð Listasafns Reykjavíkur í D-sal.
Logi Leó vinnur með hljóð, skúlptúra og vídeó í óvæntum samsetningum og innsetningum sem gjarnan yfirtaka sýningarrýmið á kánkvísan hátt. Logi notast við hversdagslegan efnivið í bland við tónlist, upptöku og hljóðbúnað og fær þannig áhorfendur til að horfa og hlusta á kunnuglega hluti á nýjan hátt.
Logi Leó Gunnarsson (f.1990) býr og starfar í Reykjavík. Hann útskrifaðist með BA gráðu í Myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2014. Verk Loga hafa meðal annars verið sýnd í Grikklandi, Noregi, Sviss og Rússlandi
Sýningaröðin í D-sal hóf göngu sína árið 2007. Hér er listamönnum sem hafa mótandi áhrif á íslenska myndlistarsenu boðið að halda sína fyrstu einkasýningu í opinberu safni.