2. maí 2023 - 16:15
Þjóðsögur á þriðjudögum í Ásmundarsafni
Staður viðburðar:
Ásmundarsafn
Nú verður boðið upp á krassandi þjóðsagnalestur fyrir börn og fjölskyldur þeirra alla þriðjudaga í tengslum við sýninguna Sigga Björg og Ásmundur Sveinsson: Andardráttur á glugga.
Við lesum hefðbundnar íslenskar þjóðsögur, kryddum með glænýjum þjóðsögum eftir Siggu Björgu og skoðum sýninguna saman.
Sannkölluð gæðastund í lok dags í ævintýrahúsinu hans Ásmundar Sveinssonar.
Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur.