Þokulúðurinn: Gjörningakvöld með Töru og Sillu
Gjörningur hér, gjörningur þar, gjörningar allstaðar! Verið hjartanlega velkomin á Þokulúðurinn, gjörningakvöld með gestgjöfunum Töru og Sillu, föstudaginn 11. mars kl. 20-22.00 í Hafnarhúsi.
Þokulúðurinn er open-mic-gjörningakvöld á listahátíðinni Gjörningaþoka; kvöldstund helguð gjörningalistinni þar sem sviðið er leikvöllur og öllum velkomið að koma og flytja gjörning. Gjörningalistamenn, fagfólk eða áhugamenn og þið þarna úti sem bara vilja koma og fagna lífi og list - ekki missa af þessu kvöldi óvissu og gleði. Listamannatvíeykið Tara og Silla halda um viðburðinn og kynna gjörningadagskrá með örgjörningum yfir kvöldið. DJ Sley og PSYAKA spila listtóna fyrir, undir, yfir og eftirá.
Open-mic-gjörningakvöld virkar þannig að þeir sem vilja vera með gjörning skrá sig á lista við komu sína. Í rýminu verða nokkur svið og munu sumir gjörningar skarast á við aðra. Tímalengd ekki meiri en 5-10 mín.
Við hvetjum fólk að mæta tímanlega, því þegar listinn er fullur er listinn fullur!
Ekki er skylda að mæta með gjörning né flytja. Hamingjustund á barnum frá kl. 18.00 (opið til 22).
Tara Njála Ingvarsdóttir (f. 1996) og Silfrún Una Guðlaugsdóttir (f. 1996) hafa unnið og pússað stígvélin sín saman sem tvíeykið Tara & Silla síðan þær hófu fyrst samstarf árið 2018 í myndlistarnámi við Listaháskóla Íslands. Tvíeykið vinnur aðallega með gjörninga, innsetningar, vídeóverk og skúlptúra. Megin þemu í verkum þeirra eru fögnun, samskipti, töfrar og vinátta. Tvíeykið hefur tekið þátt í mörgum samsýningum, haldið tvær einkasýningar síðan að þær útskrifuðust árið 2020, “Ride the Art” í Höggmyndagarð Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík og “Tilfiningamatarboðið; tilhlökkun” í Kaktus á Akureyri. Tara og Silla búa og starfa í Reykjavík.
Heildardagskrá Gjörningaþoku má nálgast á heimasíðu safnsins
Aðgöngumiði gildir sem hátíðarpassi.