30. júní 2019 - 16:00

William Morris: Alræði fegurðar!

William Morris: Alræði fegurðar!
Staður viðburðar: 
Kjarvalsstaðir

Opnun sýningarinnar William Morris: Alræði fegurðar!

Sýning á verkum breska hönnuðarins William Morris. Morris (1834-1896) var listamaður, hugsuður, rithöfundur og samfélagsrýnir og hafði mikil áhrif á samtíma sinn og skildi eftir sig sjónrænan menningararf og hugmyndafræði sem hafa haft áhrif allt til okkar daga.

Tengsl Morris við Ísland eru áhugavert rannsóknarefni en hann ferðaðist hingað tvisvar á starfsævi sinni, árið 1871 og árið 1873. Morris varð fyrir miklum áhrifum í Íslandsheimsóknum sínum, heillaðist bæði af menningu og náttúru. Heimildir herma að hann hafi ætíð upplifað sig sem mann norðursins og lýsti það sér í óstöðvandi áhuga hans á íslenskum bókmenntum en ekki síður í ófáguðu útliti.