Safnanótt í Listasafni Reykjavíkur
Listasafn Reykjavíkur - Safnanótt
Safnanótt verður haldin föstudagskvöldið 3. febrúar en þá opna fjölmörg söfn dyr sínar og bjóða upp á skemmtilega og fjölbreytta dagskrá til 23.00.
Litrík dagskrá verður í öllum safnhúsum Listasafns Reykjavíkur gestum að kostnaðarlausu.
Hér má sjá fjölbreytta dagskrá Listasafns Reykjavíkur á Safnanótt:
Hafnarhús:
17.00 – 23.00: Иorður og niður - Safnanæturgjöf úr Norðri – skemmtilegur spilastokkur til að virkja ímyndunaraflið, skoða myndlist frá ýmsum sjónarhornum og ferðast um listheima. Ath. meðan birgðir endast.
19.30 / 20.30: Örleiðsögn sýningarstjóra, Becky Forsythe um sýninguna Erró: Skörp skæri
21.00 / 21.30: Örleiðsögn sýningarstjóra, Markúsar Þórs Andréssonar um sýninguna Norður og niður
19.30 – 22.30: Samklipp – Opin smiðja fyrir allan aldur í tengslum við sýninguna Erró: Skörp skæri
19.00 / 21.00: Forward – Listhópur Reykjavíkur 2023 - HOFIE V sýnir Dansverk eftir Lind Rongen
Kjarvalsstaðir:
Hefurðu komið í helgustu vé Kjarvalsstaða? Gestum boðið að skoða listaverkageymslur safnsins
Heimsókn í listaverkageymslurnar á Kjarvalstöðum er einstakt tækifæri til að skoða geymslurnar í fylgd safnafræðings. Takmarkaður aðgangur og skráning nauðsynleg.
Tímasetningar í boði: 19.00 / 19.30 / 20.00 / 20.30 / 21:00 / 21:30
Skráning kl. 19.00 HÉR (uppselt)
Skráning kl. 19.30 HÉR (uppselt)
Skráning kl. 20.00 HÉR (uppselt)
Skráning kl. 20.30 HÉR (uppselt)
Skráning kl. 21.00 HÉR
Skráning kl. 21:30 HÉR
18.00 – 20.00: Mótmæling – Opin smiðja fyrir allan aldur í tengslum við sýninguna Hildur Hákonardóttir: Rauður þráður. Búðu til þitt eigið kröfuspjald!
20:00: Leiðsögn á pólsku með myndlistarmanninum Lukas Bury um sýninguna Jóhannes S. Kjarval: Fyrstu snjóar
21.00: Leiðsögn sýningarstjóra Sigrúnar Ingu Hrólfsdóttur um sýninguna Hildur Hákonardóttir: Rauður þráður
Ásmundarsafn:
17.00: Sýningaropnun á Safnanótt. Sigga Björg og Ásmundur Sveinsson: Andardráttur á glugga.
19.30: Vasaljósaleiðsögn og þjóðsagnalestur fyrir allan aldur – inni og úti. Komdu með þitt eigið vasaljós eða fáðu lánað.
21.30: Kvöldvaka í Ásmundarsafni. Taktu stökkið inn í fortíðina! Húslestur þar sem við eigum saman notalega stund um náttmál.