Veldu ár

2024 (7)
2023 (21)
2022 (16)
2021 (21)
2020 (21)
2019 (27)
2018 (19)
2017 (21)
2016 (18)
2015 (20)
2014 (19)
2013 (17)
2012 (17)
2011 (22)
2010 (26)
2009 (25)
2008 (24)
2007 (26)
2006 (14)
2005 (16)
2004 (24)
2003 (32)
2002 (18)
2001 (20)
2000 (19)
1999 (13)
1998 (11)
1997 (14)
1996 (17)
1995 (17)
1994 (17)
1993 (22)
1992 (27)
1991 (24)
1990 (24)
1989 (25)
1988 (38)
1987 (38)
1986 (26)
1985 (28)
1984 (34)
1983 (28)
1982 (30)
1981 (26)
1980 (27)
1979 (21)
1978 (23)
1977 (21)
1976 (24)
1975 (19)
1974 (11)
1973 (11)
18.09.2010
28.08.2011

Erró: Klippimyndir 1950 - 2010

Klippimyndir eru listform sem Erró uppgötvaði í Myndlista- og handíðaskóla Íslands árin 1950–1951. Þar notaði hann rifinn eða tilklipptan litaðan pappír til þess að búa til óhlutbundin og hlutbundin verk með fyrirmyndir úr nútímalistasögu og ýmsum alþýðuhefðum.

Erró hóf þó ekki meðvitað notkun samklippu fyrr en í lok sjötta áratugarins og þá í formi mynda og prentaðra texta. Árið 1958 gerði hann syrpu samklipputeikninga í Ísrael, Radioactivity, sem vísar í herferð franskra súrrealista gegn kjarnorku. Þessi verk eru samsett af myndbrotum eða setningum sem klipptar eru úr blöðum annars vegar og hins vegar af persónum sem eru teiknaðar fríhendis og þrungnar spennu. Ári síðar í París, hættir Erró að beita grafík í klippimyndum sínum. Í stað þess notast hann eingöngu við fundið prentað efni (til dæmis vinsæl tímarit og rit um tæknileg efni). Á árunum 1959–1960 gerir hann myndasyrpuna Méca-Make-up sem er samsett úr myndum af vélum, hlutum úr verksmiðjum og fyrirsætu andlitum. Hann nær hámarki hinnar frumlegu sköpunar sinnar með því að útfæra hluta þessara fyrstu mynda í málverkum en þar með öðlaðist klippimyndin tvöfalt hlutverk: mynd heilsteypts verks með eigin ásjónu og hlutverk skissu að nýjum stíl. Það er þó ekki fyrr en árið 1964, þegar listamaðurinn kynnist bandarísku neyslu- og fjölmiðlasamfélagi í New York, að þessi tvíþætta aðferð verður kerfisbundin og klippimyndin verður „einstakur lykill að sköpunarvirkni og gerð allra verka hans“ (Alain Jouffroy, 1981).

Allt frá árinu 1989 hefur Erró gefið Listasafni Reykjavíkur 472 klippimyndir. Hér á sýningunni í Hafnarhúsinu gefst almenningi í fyrsta skipti tækifæri til að skoða 130 valdar klippimyndir sem spanna langan feril listamannsins. Til sýnis eru samklipputeikningar og samklippuuppsetningar en einnig tilklipptar pappírsmyndir frá námsárunum. Tímaröð er fylgt sem útilokar þó ekki þemaskiptingu, enda skapar Erró verkin yfirleitt í þematengdum syrpum. Í lokahluta sýningarinnar er veitt innsýn í sköpunarferli listamannsins þar sem ákveðin málverk eru tengd við klippimyndirnar sem lagðar voru til grundvallar að þeim.

 

Listamaður/-menn: 
Ljósmyndari mynda af sýningu: 
Pétur Thomsen
Sýningarstjóri/-ar: 
Danielle Kvaran
Boðskort: 
Sýningarskrá: 
Umfjöllun fjölmiðla pdf: 
PDF icon 24685513.pdf (311.67 KB)
PDF icon 24685414.pdf (365.83 KB)
PDF icon 25718338.pdf (1.02 MB)
PDF icon 25718650.pdf (1.07 MB)
PDF icon 24684583.pdf (513.21 KB)
PDF icon 25737764.pdf (918.2 KB)
Myndir frá opnun: 

Smelltu á myndirnar til að skoða fleiri myndir á Instagram og póstaðu þínum eigin með því að merkja þær með #myllumerki sýningarinnar.
Mundu að fylgja Listasafni Reykjavíkur á @reykjavikartmuseum.