30. september 2023 - 14:00

Dansverk á opnunardegi

Staður viðburðar: 
Kjarvalsstaðir

Verið velkomin á dansgjörning á fyrsta degi sýningarinnar Myndlistin þeirra hjá Íslenska Dansflokknum á Kjarvalsstöðum kl. 14.00 á laugardaginn 30. september.

Dansararnir hafa valið verk úr safneign Listasafns Reykjavíkur sem hafa verið sett upp í kubbnum í vestursal Kjarvalsstaða. Þar munu þau einnig sýna dansgjörninga yfir sýningartímabilið.

 

Á sýningunni Myndlistin okkar er kubbur þar sem settar er upp smásýningar undir heitinu Myndlistin þeirra.

Þar býður safnið samstarfsaðilum sínum og fastagestum gegnum árin að velja saman verk úr safneign Listasafns Reykjavíkur eftir eigin höfði.

Íslenski dansflokkurinn hefur um árabil átt í gjöfulu samstarfi við okkur sem tengist sýningum og viðburðum og fagnar líkt og Listasafn Reykjavíkur 50 ára afmæli í ár.

Það er því tilvalið að fá dansara úr flokknum til að velja verk úr safneigninni og deila með okkur verkum sem þau vilja sjá.