Húsfyllir og ríflega það var við opnun sýninganna YOKO ONO: EN SAGA ENN... og Erró: Stríð og friður í Hafnarhúsinu síðastliðið föstudagskvöld. Borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, opnaði sýningarnar og safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, Ólöf K.
Sunnudagurinn 16. október er síðasti sýningardagur tveggja sýninga í Listasafni Reykjavíkur. Annars vegar er um að ræða sýninguna Uppbrot í Ásmundarsafni og hinsvegar sýninguna Þetta er okkar fyrsta og síðasta verk í D-sal Hafnarhússins.
Ólöf Kristín Sigurðardóttir, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, veitti í kvöld Hildigunni Birgisdóttur verðlaunafé og viðurkenningu úr Listasjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur, fyrir framlag hennar á sviði myndlistar.
Tvær sýningar verða opnaðar í Hafnarhúsi föstudaginn 7. október kl. 18-20, YOKO ONO: EIN SAGA ENN... og Erró: Stríð og friður. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri opnar sýningarnar. Sýningarnar tengjast friðarþema sem nú er ráðandi í safninu og víðar í borginni.
Sýningunni Tilurð Errós 1955-1964 lýkur í Hafnarhúsi fimmtudaginn 29. september. Sýningin spannar mótunarár listamannsins, margslungið og glæsilegt tímabil í list hans og evrópskri listasögu, þegar hann fyrstur listamanna skapar það sem nefnt hefur verið „samklippimálverk“.
Írski listamaðurinn Richard Mosse verður viðstaddur opnun á sýningunni Hólmlendan (The Enclave) í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi við Tryggvagötu föstudagskvöldið 30. september kl. 20. Ennfremur situr Mosse fyrir svörum um verkið ásamt samstarfsmönnum sínum kl.
Listasafn Reykjavíkur og Náttúruminjasafn Íslands standa að umræðufundi í tengslum við sýninguna RÍKI – flóra, fána, fabúla sem staðið hefur í sumar í Hafnarhúsinu og er senn á enda.
Listasafn Reykjavíkur vinnur nú að sýningu á verkum Yoko Ono sem verður opnuð í Hafnarhúsinu 7. október. Mörg verka listakonunnar verða til með þátttöku sýningargesta, bæði fyrir sýninguna og eins á meðan á henni stendur.