Laugardaginn 3. september kl. 16 verður opnuð í vestursal Kjarvalsstaða sýning Hildar Bjarnadóttur, Vistkerfi lita. Á sýningunni er tekist á við þörf mannsins fyrir að tilheyra ákveðnum stað í heiminum.
Tvær stöður deildarstjóra hjá Listasafni Reykjavíkur eru lausar til umsóknar. Leitað er að öflugum einstaklingum sem hafa frumkvæði og metnað til að ná árangri í starfi.
Nú fer hver að verða síðastur að sjá lykilverk Kjarvals úr einkasafni Þorvaldar í Síld og fisk á Kjarvalsstöðum. Sýningin hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda. Sunnudagurinn 21. ágúst er síðasti sýningardagur á verkunum.
Ingibjörg Sigurjónsdóttir opnar sýningu sína Þetta er okkar fyrsta og síðasta verk laugardaginn 20. ágúst kl. 17 í D-sal Hafnarhússins. Ingibjörg er fjórði listamaðurinn til að sýna í D-salnum árið 2016.
Frú Lauga Matstofa hefur opnað nýjan kaffi- og veitingastað á 2. hæð í Hafnarhúsi. Matstofan er í umsjá Frú Laugu sem hefur getið sér gott orð fyrir verslun með ferskar matvörur frá íslenskum bændum og ýmislegt góðgæti frá meginlandinu.
Boðið er upp á tvær leiðsagnir á ensku á föstudögum í sumar – á Kjarvalsstöðum kl. 14 um sýninguna Jóhannes S. Kjarval: Hugur og heimur og leiðsögn um Hafnarhúsið kl. 16.