Nicholas Fox Weber, framkvæmdastjóri Josef og Anni Albers stofnunarinnar, heldur fyrirlesturinn Anni Albers: A Glorious Pioneer á Kjarvalsstöðum sunnudaginn 30. ágúst kl.
Listasafn Reykjavíkur býður borgarbúum upp á fjölbreytta dagskrá í Hafnarhúsi og á Kjarvalsstöðum á Menningarnótt laugardaginn 22. ágúst. Ókeypis er á alla viðburði safnsins og allir eru velkomnir.
Ólöf K. Sigurðardóttir tók við formlega sem safnstjóri Listasafns Reykjavíkur í dag af Hafþóri Yngvasyni sem gegnt hefur stöðunni síðustu tíu ár. Hafþór afhenti henni við það tækifæri lykla af safngeymslum listasafnsins.
Sýningin Hvorki né verður opnuð í D- sal Hafnarhúss Listasafns Reykjavíkur, laugardaginn 15. ágúst kl. 15. Sýningin er sú fimmta og næstsíðasta í sumarsýningarröð Kunstschlager í D-sal Hafnarhússins þar sem hver meðlimur Kunstschlager fær með sér valda myndlistarmenn.
Það var líf og fjör í listsmiðjunni í Viðey þegar Listasafn Reykjavíkur leit þar við í síðustu viku. Þátttakendur nutu náttúrunnar í blíðskaparveðri og könnuðu gróðurlífið á eyjunni fyrir myndræna framsetningu.